Kristján Mímisson

6. mars 2020

Föstudaginn 6. mars 2020 fór fram doktorsvörn Kristjáns Mímissonar við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Þá varði Kristján Mímisson doktorsritgerð sína í fornleifafræði sem nefnist A Life in Stones. The Material Biography of a 17th Century Peasant from the Southern Highlands of Iceland. Vörnin fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands

Andmælendur við vörnina voru dr. Vesa-Pekka Herva, prófessor við Háskólann í Oulo, og dr. Laurie Wilkie, prófessor við Kaliforníuháskóla, Berkeley.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Gavins Lucas, prófessors í fornleifafræði við Háskóla Íslands. Aðrir í doktorsnefnd voru dr. Steinunn Kristjánsdóttir, prófessor í fornleifafræði, og dr. Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Um doktorsritgerðina

Rannsóknin byggir á uppgrefti á kotbýlinu Búðarárbakka í Hrunamannahreppi þar sem maður að nafni Þorkell bjó á síðari hluta 17. aldar. Bæjarrústin og sérstakt gripasafn veita áhugaverða sýn á ævibrot kotbóndans. Persónu og vitund Þorkels var ekki aðeins stýrt af mannlegu hugviti og fyrirætlan heldur líka af efnislegum hlutum og eiginleikum þeirra. Steinar urðu þannig eðlislægur þáttur vitundar Þorkels svo úr varð samsett persóna mannlegra og hlutlegra þátta. Samband Þorkels á Búðarárbakki við steinana veitti honum líf á sama hátt og steinarnir, í gegnum sambönd sín við mennskuna, öðluðust líf.