Anna Heiða Baldursdóttir

Anna Heiða Baldursdóttir

Þriðjudaginn 7. febrúar 2023 fór fram doktorsvörn við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Þá varði Anna Heiða Baldursdóttir doktorsritgerð sína í sagnfræði, Hlutir úr fortíð: Eigur fólks og safngripir frá 19. öld. Vörnin fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru dr. Ágústa Edwald Maxwell, nýdoktor við HÍ, og dr. Christina Folke Ax, sérfræðingur við Nationalmuseet í Kaupmannahöfn.

Um rannsóknina

Viðfangsefni doktorsritgerðarinnar er að draga fram heimildasöfn (e. archives) og greina þá efnismenningu (e. material culture) sem þau búa yfir. Markmið rannsóknarinnar er að draga fram hversdagslíf alþýðunnar á 19. öld með rannsókn á efnismenningu dánarbúsuppskrifta sem og safnkosts Þjóðminjasafns Íslands frá sama tíma. Vísindalegt gildi rannsóknarinnar er ekki aðeins fólgið í notkun á nýjum heimildum heldur er aðferðin nýstárleg að því leyti að hún miðar að því að greina hlutina út frá mörgum sjónarhornum. Fram að þessu hefur sagnfræðin nálgast viðfangsefni sitt út frá afstöðu mannanna og lítið skeytt um efnisheiminn sem hefur veigamikil áhrif á daglega framgöngu fólks. Nýlunda verkefnisins er því fólgin í því að efnismenning eða hlutir eru notuð sem mikilvægt greiningartæki á fortíðina.